Nikon

skipamyndir

 

01 Skipamyndir

02 Skipamyndir

03 Skipamyndir

04 Skipamyndir

05 Skipamyndir

06 Skipamyndir

07 Skipamyndir

08 Skipamyndir

09 Skipamyndir

10 Skipamyndir

11 Skipamyndir

12 Eiríkur Þór

13 Skipamyndir

14 Skipamyndir

16 Skipamyndir

17 Skipamyndir

18 Skipamyndir

19 Skipamyndir

20 Skipamyndir

21 Skipamyndir

22 skipamyndir

23 Maí GK 346

 

 

 

 

 

 

 

Ávarp við komu togarans

Maí 18. maí 1960

(Alþýðublaðið 12 júní 1960.)

 

Togarinn Maí GK 346 12 júní 1960.

 

Heim til Hafnarfjarðar,

af hafi kominn,

Skeið skartbúin.

Vonarnafn ber

og vor okkur færir,

togari tignarlegur

tákn grósku.

 

Maí, mjög fagur,

megir þú njóta

heilla á hafdjúpum

og happa á miðum.

Gnótt veiddu gæða

og góðfiskjar.

Vertu í Hafnarfirði

hamingjugjafi.

 

Leiki um þig löngum

ljúfur blærinn.

Mót stormum stríðum

stýrðu með prýði.

Bylgjur Ránar

og brigðóttur Ægir

veiti þér ætíð

vináttu og gleði.

 

Styrkar hendur

stjórna fari.

Og langt skal haldið

í leit til fanga.

Mannval sé

mætra drengja

innanborðs

á öllum stundum.

 

Farið heilir

um fjarrar slóðir.

Gifta fylgi

þótt gangi á ýmsu.

Komið heim

Til kærra vina,

efldir að orku,

að erfiðu loknu.

 

Bæjarútgerðin

blómgist, stækki,

hleypi af stokkunum

hópi slíkra.

Mannvirki margs konar,

megi hún byggja,

er farsæld auki

og frambúðargengi.

 

Bjart er í dag,

blómin spretta.

Fögnuður ríkir,

framtíð við hyllum.

Maí er kominn,

mjög því gleðjast,

Hafnfirðingar

og hrósa sigri.

(Höfundur:  Hafnfirðingur)