|
Konráð Rúnar Friðfinnsson - Mynd - fæddist 24 september 1953 í Hafnarfirði. Bjó til sex ára aldurs í Halldórskoti á Hvaleyri. Fluttist þaðan ásamt fjölskyldu á Hellisgötu 15 í Hafnarfirði og bjó þar næstu 16 ár og síðan á ýmsum stöðum. Er einn tólf systkina sem öll eru á lífi nema eitt. þau búa flest í Hafnarfirði. Faðir: Friðfinnur Konráðsson sjómaður og matsveinn. Minningargrein Fæddur 3 apríl 1920. Jarðsettur: 5 febrúar 1988. Móðir: Lilja Sigurðardóttir, húsmóðir. Minningargrein Fædd: 13 október 1913. Jarðsett: 12 janúar 2000. Var á gömlu bryggjunni í Hafnarfirði 18 maí 1960 ásamt foreldrum og hundruðum annarra Hafnfirðinga er flaggskip bæjarbúa Maí GK 346 sigldi fánum prýtt inn í höfnina. Fór með skipinu útsýnistúr sem fólkinu var boðið í og fannst mikið til koma. Starfaði síðar á skipinu. Hóf skólagöngu haustið 1960 7 ára gamall. Skóli: Lækjarskóli í Hafnarfirði. Lauk barnaskóla og tók tvo bekki í Flensborg, eins og skyldan bauð nemendum að gera. Telst því enn í dag vera hálfur gagnfræðingur, sem engin reyndar veit hvað er. Var á Bítla- tímabilinu mikill aðdáandi The Beatles og gleypti tónlist þeirra hráa og blandaðist í hóp með öllum milljónunum sem fylgdu þeim á þessum tíma. Fermdist 13 ára í Hafnarfjarðarkirkju af séra Garðari Þorsteinssyni sem lengi þjónaði þar. Fór í sveit austur í Flóa 1966 og svo í Ölfusið 1967. Aðallagið á þeim tíma var „ With A Little Help From My Friends „ - með Bítlunum sem enn dregur hann í huganum að girðingunni sem var verið að lagfæra í Ölfusinu er lag þetta barst honum fyrst til eyrna. Hóf sjómennsku 1970 á bát frá Hafnarfirði sem hét Mímir ÍS í eigu Magnúsar Magnússonar (Manga Snjáku) skipstjóra og útgerðarmanns í Hafnarfirði. Íshús Hafnarfjarðar sá um rekstur bátsins. Glímdi við sjóveiki tvö ár hið minnsta en sigraðist á henni. Þaðan lá leiðin yfir á togara, báta og fragtskip. Steig alkominn í land 1986. Glímdi í nokkur ár við Bakkus falskóng. 1979 rann áfengisfíknin burt eins og fingursmellur og hefur ekki komið til baka og mun heldur ekki gera. Jesú á allan heiður og hann einn. Tók á móti Jesú á haustmánuðum 1989 og hefur gengið með honum frá þeim degi. Flutti í september 1991 til Neskaupstaðar og bjó þar til ársins 1998 og starfaði við fiskvinnslu og á netverkstæði. Fluttist 1998 aftur til Hafnarfjarðar og hefur síðan þá að mestu verið á þessu svæði og frá árinu 1999 alfarið unnið á akri Guðs sem trúboði, eins og sumir segja, sjálfstæður trúboði. Stofnaði konni.is 2002. Segja má að heimasíðan sé samt eldri og hafi verið til frá árinu 2000, undir öðru nafni til að byrja með. Hefur frá frelsunardegi einblínt dálítið á sjómenn og haft löngun til að koma Orði Drottins til þeirra og að gera eitthvað þeim tengdum á Sjómannadaginn og jafnvel sjá um útgáfu á kristilegum sungnum sjómannalögum, en ekkert slíkt efni er til hérlendis. Til sjósins hafa ræturnar legið frá barnæsku. Samfélag Konráðs 27 júlí 2010: Krossinn Hlíðarsmára 5- 7 í Kópavogi.
Stofndagur samfélagsins Krossins: 12. ágúst 1979 í Kópavogi
Forstöðumaður Krossins: Gunnar Þorsteinsson. Kveðja í Jesú blessaða nafni. Konráð Rúnar Friðfinnsson trúboði og ritstjóri konni.is. Gert í Kópavogi 27 júlí 2010. |