

9 nóvember 2011 var þessi erlendi togari á leið frá Hafnarfirði og sigldi rólega ferð út fjörðinn í fylgd lóðsbátsins.

9 nóvember 2011. Hér var áð stutta stund en varla til að kasta mæðinni.

9 nóvember 2011. Hraðskreiður fiskibátur á ferð beint fyrir framan golfvöll hafnfirðinga.

9 nóvember 2011. Stefnir ÍS landar nokkuð reglulega í Reykjavík og selur afla sinn á markaðnum þar. Skipið er gert út frá vestfjörðum.

07 nóvember 2011. Tveir jötnar sem ekkert láta sig muna um að lyfta nokkrum tonnum.

10 nóvember 2011. Jón Vídalín við bryggju í Reykjavík í brælunni sem gekk yfir suðurland.

10 nóvember 2011. Dröfn tilheyrir flotanum sem rannsakar lífríkið í hafinu og metur fiskistofnanna fyrir Hafró.

12 nóvember 2011. Stormur í engum stórsjó heldur bundin við bryggju í Hafnarfjarðarhöfn.

12 nóvember 2011. Hafnarfjarðarhöfn.

12 nóvember 2011. Skútueigandi siglir skútu sinni í lægi sitt. Hluti Viðeyjar í baksýn.

12 nóvember 2011. Horft yfir til Akranes í fallegri birtunni sem Drottinn gaf á þessu augnabliki.
22 nóvember 2011. Brynjólfur VE 3 við bryggju í Reykjavík. Stefnið er af Vigra RE.
22 nóvember 2011. Nýlega málaður og eins og nýr úr " kassanum. "
22 nóvember 2011.
22 nóvember 2011. Glæsilegur og tilheyrir togarflota íslendinga sem hafa gert út togara í rúm 100 ár og hinn fyrsta, " Coot, " frá Hafnarfirði.

5 desember 2011. Elding við bryggju í Hafnarfjarðarhöfn.

5 desember 2011. Skútur í vetralægi sínu. Sumarið er þeirra tími.

8 desember 2011. Þór, nýjasta varðskip íslendinga, við festar og spurning hvort skipið sé kolakynt? En... Varla.

5 desember 2011. Eins og sést er töluverður stærðarmunur á Þór og gamla varðskipinu sem liggur utan á honum. Ímyndið ykkur aðstöðumuninn fyrir áhöfnina.

5 desember 2011. Handtökin æfð og hvergi slakað á kröfunum.

12 desember 2011 lá Smáey VE 144 frá Vestmannaeyjum í Reykjavíkurhöfn.

12 desember 2011.

14 desember 2011. Happasæll KE 94 lá í Sandgerðishöfn. Happasæll er einn af Austur þýsku bátunum sem á sínum tíma voru smíðaðir fyrir íslendinga. Þessi kom 1961. Austurþýsku bátarnir voru um eða yfir 100 tonn að stærð. Hve margir af þessum bátum er enn brúkaðir við Ísland er ekki gott að segja en líklegt að þeim hafi nú fækkað.
Mímir ÍS, gerður út frá Hafnarfirði 1970, Már GK frá Grindavík og Leó VE frá Vestmanneyjum, að fáeinir skip séu talin, voru allt bátar sem Austur þjóðverjar byggðu eftir sömu teikningu og Happasæll sem Hjálmar Bárðarson (F/ 1918-D/ 2009) f/v siglingamálastjóri teiknaði.

14 desember 2011. Möstrin og ljósin tilheyra Njáli sem lá í höfninni í Keflavík.

14 desember 2011. Arnþór GK 20 í Keflavíkurhöfn.

14 desember 2011. Keflavíkurhöfn.

14 desember 2011. Benni Sæm GK 26 er eins og Arnþór GK gerður út frá Garði. Hvort um sömu útgerð sé að ræða ekki vitað en vel hægt að álikta svo.

14 desember 2011. Keflavíkur höfn.

14 desember 2011. Benni Sæm GK 26 er eins og Arnþór og Siggi Bjarna skráður í Garðinum og var eins og þeir á sama tíma við bryggju í Keflavík.