
19 skipamyndir

3 október 2011. Gamla höfnin í Reykjavík.

3 október 2011. Árni Friðriksson er glæsilegt skip.

3 október 2011. Brúin á Sigurði VE er ekki stór í samanburði við brú skuttogarans frá Nýfundnalandi.

3 október 2011. Einmanna andarsteggur sem veit ekki hvort hann er að koma eða fara.
3 október 2011. Friðarsúlan sem Yoko Yono lét setja upp í Viðey á sínum tíma. Verkið tengist friðarstarfi John Lennon sem eins og menn vita var partur af The Beatles.
The Beatles voru John Lennon, Paul McCartney, Ringo Starr og George Harrison. Paul og Ringo eru þeir einu sem enn eru lifandi af hljómsveitinni The Beatles.

3 október 2011. Viðeyjarferjan er nauðsýnleg fyrir Viðeyinga.

3 október 2011. Skip á vegum Eimskipafélagsins.

5 október 2011. Þessi lá við festar í Keflavíkurhöfn.

5 október 2011. Ein með gamla góða bátslaginu afturbyggður með manna íbúðirnar að stærstum hluta framí.

5 október 2011. Þegar ekki er verið að nota bryggjupollanna til að halda bátum upp við bryggjuna er upplagt að hvíla sig ögn á þeim.

5 október 2011. Hey!!! Mismunun! Bara annar fuglinn í fókus.

8 október 2011. Gamla varðskipið ryðgar bara og ryðgar. Hvað verður um þetta skip er ekki gott að segja

8 október 2011. Þessi lá við Kornbryggjuna í Sundahöfn.

8 október 2011.

8 október 2011. Skemmtileg veðraskil í myndinni.

8 október 2011. Reykjavíkurhöfn.
13 október 2011. Togarinn Örfirisey var í Reykjavíkurhöfn færandi landanum sinn gjaldeyrir eins og oft áður.
13 október 2011. Helga María lá fyrir framan Örfirisey
13 október 2011. Bro Glory er olíuskip, 104 metrar að lengd og 15 metra breitt, með um 6, 500 tonn að burðargetu og siglir undir Hollenskum fána . Skipið kom til Reykjavíkur frá Þórshöfn í Færeyjum.

21 október. Bjarni Ólafsson við bryggju á Akranesi.

21 október 2011.

21 október 2011. Ebbi AK 37 sker sig í ætt nútímabáta. Plast upp úr og niður úr.

21 október 2011. Ísak AK 67 er aftur á móti smíðaður úr járni.

21 október 2011. Lundey hét í upphafi Narfi RE svo Jón Kjartansson SU 111. Lundey við bryggju á Akranesi.

21 október 2011. Akraneshöfn.

21 október 2011.

21 október 2011. Hluti íslenska skipaflotans. Stór og öflug skip.

21 október 2011. Ingunn AK 150 tilbúinn í slaginn undireins og flautað verður.

21 október 2011. Hvalur 6 og Hvalur 7 komnir á þurrt.

21 október 2011.

21 október 2011.

21 október 2011. Vel er hugsanlegt að ferðamenn hefðu gaman af að skoða skipin ef opnað yrði á það og þiggja gómasætar og vel eldaðar hvalafurðir um borð í t.a.m. öðru skipinu.

21 október 2011. Akraneshöfn.

21 október 2011. Akraneshöfn.