Konni.is 

kristileg heimasíða

18 Skipamyndir


30 ágúst 2011.  Arnarfell, skip Samskipa, siglir inn með háreistan farm af gámum á dekkinu.

30 ágúst 2011.  Þrátt fyrir allt er hér enn stundaður innflutningur á varningi með flutningaskipum.

30 águst 2011.  Arnarfellið er nútímalegt í útliti með litla, mjóa og háa yfirbyggingu aftast og öfluga krana á dekki fyrir gámanna.

30 ágúst 2011.  Hverrar þjóðar mennirnir um borð eru er ekki gott að segja en hvernig sem það mál er vaxið þá vill Guð blessa áhöfnina.

30 ágúst 2011.  Skildi vera Prins Pólo í einhverjum gámanna frá framleiðanda í Póllandi?

30 ágúst 2011.

30 ágúst 2011.  Að koma í höfn er notaleg tilfinning sem allir sjómenn þekkja vel.

8 september 2011.  Foss Eimskipafélagsins heldur til hafs frá Reykjavík í stífri norðanátt.

8 september 2011.  Farþegaskip við bryggju í Sundahöfn.  Áhöfnin fær nýja fastsetningarenda um borð í skip sitt.

8 september 2011.  NEWFOUNDLAND LYNX er frá St. Jons og siglir undir  kanadískum fána.  Togarinn er sem sjá má mikið skip og hefur verið í nokkra daga í Reykjavíkurhöfn.

8 september 2011.  Ástæða veru NEWFOUNDLAND LYNX er ekki kunn.  En gera má ráð fyrir því að um einhverjar viðgerðir sé að ræða.  Allavega var skipið síðar dregið í slipp og það málað með grænum lit.

8 september 2011.  Árni Friðriksson á sínum stað.

8 september 2011.  Skip í gömlu höfninni í Reykjavík.

8 september 2011. 

8 september 2011.

23 september 3011.  Út á Sundunum Bláu fór fram björgunaræfing og var þyrlan efst í horninu með í verkinu.

23 september 2011. Björgunarskipið siglir til hafnar að æfingu lokinni.

23 september 2011.  Mikið öryggi er því samfara að hafa yfir svo öflugu björgunartæki að ráða.

23 september 2011.  Silver Ocean í Reykjavíkurhöfn.

23 september 2011.  Silver Ocean er 97, 7 metra langt, 15, 7 metra breytt, gengur rúmar 14 sjómílur, er 3, 817 tonn, smíðað 1998 og siglir undir Norskum fána.

23 september 2011.  Venus og Helga María snúa stefnum saman og horfa svolítið ógnandi hvor á annan.- " Þú þarna tappinn þinn. "

23 september 2011.

23 september 2011.  Áætlunarflugið fylgir mannlífinu í dag.

23 september 2011.  Lognið leikur við hvern sinn fingur.

23 september 2011.  Silever Ocean.  Norðmenn eru mikil siglingaþjóð.

23 september 2011.

S23 september 2011.  Sigurður VE í Reykjavíkurhöfn. Skipið er gert út frá Vestmanneyjum og hefur verið í þjónustu landsmanna frá 1960.

(Sigurður eins og hann leit út á meðan hann enn var gerður út sem togari.  Innlegg ritstjóra)

" B.v Sigurður ÍS 33 (C) Mynd: Haraldur Jónsson


Á bátapalli Sigurðar má sjá björgunarbátinn sem situr í sætum sínum og tengdur við kranadavíðuna. En báturinn er ný viðgerður á myndinni. Björgunarbáturinn hafði skemmst mikið í brotsjó þá um veturinn áður, 1966-7. Í fyrri texta hér við myndina kom fram að báturinn hefði eyðilagst, en það er ekki rétt. Hann var sem fyrr segir lagfærður. Það leiðréttist hér með. "

22 september 2011.  Sigurður VE 15  hreinsaður hátt og lágt með aflmikilli háþrýstidælu sem enginn óhreinindi stóðust.

22 september 2011.  Sigurður VE tilheyir gömlu kynslóð fiskiskipa en er samt glæsilegur .

22 september 2011.  Ásbjörn var eitt sinn gerðu út af útgerð sem hét Ísbjörninn en er nú í eigu Granda h/f.

22 september 2011.  Ásbjörn nýkominn úr klössun í Reykjavíkurslipp með hreinan botn og fagurbláan lit á skrokki og mjallahvíta yfirbyggingu.

22 september 2011.

22 september 2011.  Stefnið er Þóris frá Hornarfiði.

23 september 2011.  Síðasta skemmtiferðaskip sumarsins lagst að bryggju.  Glæsilegt fley með marga menn innanborðs en samt lítið miðað við sum skip í þessum flokki.

23 september 2011.  Tugir skemmtiferðaskipa  komu til landsins 2011.  Yfir 70 skip boða komu sína árið 2012.  " Harpa tónlistarhús.! Vertu tilbúin með dagskránna. "

23 september 2011.  Sá grái er gamall kunningi sem oft hefur sótt reykvíkinga heim.

23 september 2011.  Guli vitinn sem öll ský horfa niður til.

29 september 2011 fékk Júlíus Geirmundsson sinn háþrýstiþvott við bryggju í Reykjavík.

29 september 2011. 

29 september 2011. NEWFOUNDLAND LYNX frá St. Johns í slipp og búinn að skipta út svarta litnum fyrir grænan.  Hvenær skipinu verður rennt aftur niður er ekki gott að segja.  En að þeim tímapunkti kemur.  Það er ljóst.  " Hálfnað verk þá hafið er "- segir enda máltækið.