

Stöðvarfirði 5 ágúst 2011. Hoffell var bundinn við bryggju og beið eftir því að verða sleppt og að halda til veiða.

Stöðvarfirði 5 ágúst 2011. Allt rólegt og stillt.

Stöðvarfirði 5 ágúst 2011. Skýin teygja sig niður í miðjar fjallshlíðar og stillan á firðinum bætti upp sólarleysið.

19 ágúst 2011 lá Knorr bundið við bryggju í Reykjavíkurhöfn. Skipið er byggt 1969, það er 8 metra langt og 7 metra breitt og er um 2500 tonn að stærð. Ganghraði er 11 sjómílur.

19 ágúst 2011. Margt í útliti Knorr bendir til þess að skipið stundi rannsóknir á hafinu.

19 ágúst 2011. Fánarnir hanga þarna við sá bandaríski og sá íslenski.

19 ágúst 2011. Vistamar er farþegaskip og svona í smærri kantinum. Skipið lá við bryggju í Reykjavík. Það er byggt 1989 og 121 metri á lengd og 16 metra breitt, gengur 10, 2 sjómílur og siglir undir Ítölskum fána

19 ágúst 2011. Seglskútueign landans er nokkur og alltaf annað veifið sigla hingað útlendingar og þá komnir um langa leið. Hvort skúturnar á myndinni tilheyri erlendu fólki er ekki vitað. Guð blessi eigendurna.

19 ágúst 2011. Harpa er kominn á lokastig og í búninginn sem landsmenn munu þekkja þegar fram líða stundir. Hafnargarðurinn sem lokaður var fyrir allri umferð í nokkra mánuði hefur aftur verið opnaður og er nú hægt að aka niður að vitanum.

20 ágúst 2011. Trillur á siglingu í blíðunni í Reykjavík

20 ágúst 2011. Mörg skip hafa siglt fyrir þennan vita.

20 ágúst 2011. Gulu vitarnir tveir eru eitt af táknum Reykjavíkurhafnar.

20 ágúst 2011. Dagurinn sem Harpa fær sína formlegu opnun.

20 ágúst 2011.
20 ágúst 2011.
Bærinn fullur af fólki. Enda Menningarnótt.

20 ágúst 2011.

20 ágúst 2011. Skútueigandi í Hafnarfirði færir skútu sína.

20 ágúst 2011. Hafnarfjarðarhöfn. Sannarlega afturbyggður þessi.

20 ágúst 2011. Stormur var í Hafnarfjarðarhöfn í blíðunni sem þá ríkti. Hvort netapakkinn á myndinni tilheyri bátnum er ekki vitað.

29 ágúst 2011. Reykjafoss er eitt af skipum Eimskipafélagsins.

29 ágúst 2011. Reykjafoss hlaðið gámum.

29 ágúst 2011. Flutningaskip nútímans eru byggð með allan hraða á lestun og losun í huga. Sú tíð er að mestu liðin að sjómenn fái nokkra daga inniveru hvort sem er hér heima eða í erlendum höfnum í allavega áætlanasiglingum.

29 ágúst 2011. Í Sundahöfn í Reykjavík.