

18 júní 2011 lá þessi erlendi togari í Reykjavíkurhöfn

18 júní 2011.

21 júní 2011. Tjaldur við bryggju. Skipið er línuveiðari.

21 júní 2011. Glæsilegt skip stórt og öflugt og allt í nútímanum.

21 júní 2011. Turn Hafnarfjarðarkirkju málaður með grænni málningu úr voða háum krana.

24 júní 2011. Vigri RE liggur bundin við olíubryggjuna í Reykjavík og bíður eftir því að olíutankar skipsins séu fylltir sínu eldsneyti.

24 júní 2011. Hringur SH er stuttur í annan endann og vantar alla lengd.

24 júní 2011. Skipið bæri vel nokkra metra lengingu.

24 júní. Guð blessi áhöfn, skipstjóra og útgerð skipsins.

24 júní 2011. Faxi RE hefur legið nokkurn tíma í Reykjavíkurhöfn og hafa farið fram viðgerðir á skipinu. Allar góðar útgerðir halda sínu vel við.

24 júní 2011. Þessi kross tilheyrir Seltjarnarneskirkju og blasir blár himininn við.

20 júní 2011. Gullborg RE 38 tilheyrir gamla tímanum og hluta útgerðarsögu íslendinga. Engin smíðar lengur svona stórt skip úr tré.

28 júní 2011. Bandaríska seglskipið " Eagle " liggur við Miðbakkann í Reykjavík og er stærsta þrímastra seglskip, allavega Bandaríkjamanna, og 90 metra langt. Skipið var opið almenningi.

28 júní 2011. Skipið kom frá Englandi til Íslands og varð eign Bandaríkjanna í stríðslok 1945. Svo virðist sem að Þjóðverjar hafi átt nokkur seglskip fyrir stríð sem þeir urðu að láta af hendi í stríðslok sem enn eru í siglingum.


28 júní 2011. Bandarísku fáninn blaktir á fánastöng skipsins. Guð blessi áhöfn Eagle, skip og Bandarísk stjórnvöld.

28 júní 2011. Brimnes við bryggju.

28 júní 2011. Brimnes er í eigu Brims.
Margir hafa yndi af að festa augnablikið á filmu, eins og sagt er, og eignast minningar með þessum einfalda hætti.
Ljósmyndin segir oft meira um söguna heldur en mörg orð fá gert.
Kirkja er lengi búin að nýta sér mátt ljósmyndarinnar í sínu starfi. Enda hluti af nútímanum.