Konni.is 

kristileg heimasíða

14 Skipamyndir

17 maí 2011.  Goðafoss var í Reykjavík

17 maí 2011.  Fiskur lestaður í Reykjavík.

17 maí 2011.

17 maí 2011.

17 maí 2011.  Stefnin tvö kallast á: 

" Hey stefni!  Það er ryðblettur fremst á nefinu á þér. "-

" Æ, byrja þú nú ekki aftur. "- sagði þá hitt stefnið.

17 maí 2011

24 maí 2011.  Togarinn Barði frá Neskaupstað við bryggju í Reykjavík.

24 maí 2011.  Skipsmenn Barða NK. vinna við veiðarfærin.

24 maí 2011.  Mörg handtökin tilheyra vinnu sjómannsins sem krefst sinnar kunnáttu.


Flutningaskipið Akranes strandaði á Vötnunum miklu í desember 1984.

Vatn safnaðist á dekkið við hvalbakinn eins og sjá má og náði það mönnum í mið læri við uppganginn.  Mannskapurinn var aldrei í neinni hættu og hélt ró sinni allan tímann.

Í lok nóvember 1984 var flutningaskipið Akranes á leið upp Vötnin miklu.  Í fyrstu tafðist skipið í um 17 daga vegna brúar sem hrundi rétt ofan við Montreal og þurfti að bíða þar ásamt fjöldanum öllum af skipum frá ýmsum löndum.

Skipsmenn og aðrir vinna að þéttingu skipsins í lestinni.  Stálþil var soðið á byrðinginn að innanverðu og holrúmið sem myndaðist fyllt upp með steypu.  Allt hrært á staðnum.  Fyrst á höndum og svo í lítilli steypuhrærivél sem fengin var að láni í landi.  Verkið gekk ótrúlega hratt og vel fyrir sig. 

Enda harðduglegir og samstilltir menn að verki.

 

Er brúin loks komst aftur í lag og hægt að hleypa bíðandi skipaflotanum upp fljótið tók ekki betra við hjá Akranesinu því að skipið rak stjórnborðsíðuna utan í sker sem þar var á einum stað og kom við höggið nokkra metra löng rifa stjórnborðsmegin og undir sjólínu í lest númer tvö sem vatn fossaði inn um.  Og lá skipið á strandstað í nokkrar vikur á meðan viðgerð til bráðabirgða fór fram. 

Er þéttingu lauk var 3000 lestum af vatni dælt upp úr lestinni og siglt áleiðis til Montreal í Kanada og gert við skipið við bryggju.  Það var gerlegt með þeirri aðferð að halla skipinu nógu mikið yfir á bakborða.  Og kom þá gatið upp fyrir sjólínu stjórnborðmegin og viðgerð möguleg þarna á bryggjunni.

Þótt myndin sé ekki góð sést samt að Akranesið er tölvert sigið að framan.  Enda lest númer tvö hál full af vatni.

Frá Montreal lá leiðin svo til Philadelphiu í Bandaríkjunum og skipið fyllt af kolum fyrir Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga. Til Grundartanga kom skipið í kringum 11 janúar 1985 eftir úthald sem stóð hátt í fjóra mánuði.

Akranes við bryggju í líklega Noregi

Flutningaskipið Akranes var um tíma stærsta skip íslendinga og var oft í siglingum fyrir Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga.  Stundum var skipið í leigu erlendis.  Allt eftir verkefnum hverju sinni, eins og gengur í þessum bransa. Nesskip gerði skipið út í mörg ár ásamt nokkrum öðrum skipum.


 

4 júní 2011 lá þetta Norska varðskip í Reykjavíkurhöfn

4 júní 2011.  Íslenska varðskipið sem smíðað  er í Chíle og neitar enn að sigla til landsins, er byggt samkvæmt sömu teikningu og Kristvakt.

7 júní 2011  Flutningaskip á athafnasvæði Eimskips

7 júní 2011

7 júní 2011

7 júní 2011  Erlendur togari (Grænlenskur?) fær þjónustu í Sundahöfn í Reykjavík.

 

Blessuð ljósmyndin

Margir hafa yndi af að festa augnablikið á filmu, eins og sagt er, og eignast minningar með þessum einfalda hætti. 

Ljósmyndin segir oft meira um söguna heldur en mörg orð fá gert.

Kirkja er lengi búin að nýta sér mátt ljósmyndarinnar í sínu starfi.  Enda hluti af nútímanum.